Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 01. júní 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Logi Hrafn meiddist í tapi
Logi Hrafn fór meiddur af velli
Logi Hrafn fór meiddur af velli
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Srdjan Tufegdzic og lærisveinar hans í Värnamo töpuðu fyrir Nordic United, 2-0, í sænsku B-deildinni í gær.

FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson var í byrjunarliði Värnamo en hann hefur verið að gera góða hluti síðan hann kom frá NK Istra í byrjun ársins og alls skorað þrjú mörk.

Hann fór því miður meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks gegn Nordic United sem reyndist mikið högg fyrir Värnamo sem fékk á sig tvö mörk í síðari hálfleik.

Värnamo er í 14. sæti með 10 stig eftir tíu leiki.

Arna Eiríksdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga sem tapaði fyrir Lyn, 2-0, í norsku úrvalsdeildinni. Bæði mörkin voru sjálfsmörk.

Vålerenga er í 3. sæti deildarinnar með 19 stig eftir tíu umferðir, níu stigum frá toppliði Brann.
Slapp
banner
banner