Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 11:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stuðningsmenn Brann hissa og ósáttir með ákvörðunina
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Samstarfi Freys Alexanderssonar og Brann var slitið í morgun eftir tæplega eitt og hálft ár hjá Frey í þjálfarastöðu aðalliðsins.

Freyr náði eftirtektarverðum árangri á síðasta tímabili, liðið fór í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og gerði vel þar. Á tíma Freys hjá félaginu voru mjög margir meiddir og leikmenn seldir sem hann vildi ekki missa. Freyr lét vita af því að hann væri ekki sáttur með ýmislegt og eru kenningar um að það spili inn í ákvörðun stjórnar.

Byrjunin á tímabilinu í ár var ekki góð í deildinni og ákvað stjórn félagsins að fara í breytingar.

Þetta eru stuðningsmenn Brann ekki sáttir við, þeir eru hissa, vilja margir hverjir að stjórnin stígi frá borði og krefjast frekari útskýringa. Klukkan 12:00 verður fréttamannafundur þar sem einhverjum spurningum þeirra verður svarað.










Slapp
banner
banner