„Virkilega ánægður. Við byrjuðum ekki alveg nógu sterkt, þeir voru betri fyrstu 15 mínúturnar, en svo fannst mér við taka yfir leikinn," segir Emil Atlason, framherji Stjörnunnar, eftir sigur gegn Þór á Akureyri.
Þór leiddi 1-0 í hléi en Stjarnan skoraði tvö draumamörk í fyrri hluta seinni hálfleiksins.
Þór leiddi 1-0 í hléi en Stjarnan skoraði tvö draumamörk í fyrri hluta seinni hálfleiksins.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 3 Stjarnan
Emil kom Stjörnunni í 1-2 með frábæru skoti fyrir utan teig.
„Það kemur langur bolti, hann skallar boltann út, ég snerti hann og kontra hann svo í Samúel. Frábært að hitta hann svona, hitti hann „ágætlega"."
Hvernig fannst þér að spila á þessum velli, þú fékkst gult spjald fyrir að hreyta aðeins í dómarann? Emil kallaði „what is wrong with you?" í átt að dómara leiksins.
„Það er frábært að spila hérna, frábær stemning í stúkunni hjá Þórsurum og geggjað að fá okkar lið líka (í stúkuna), bara geggjað að spila hérna á Akureyri. Með spjaldið, það var bara tuð og ég þarf að hætta því, fékk gult fyrir tuð líka síðast. Mér fannst bara dómurinn fáránlegur, en ég þarf kannski að róa mig."
Það er trú á verkefninu hjá Stjörnunni þrátt fyrir erfiðleika í byrjun tímabils.
„Algjörlega, við ætlum okkur að komast út úr þessu. Við þurfum meiri anda í liðið og það er frábært að fá þetta veganesti í þetta kærkomna frí."
Hvernig hefur umræðan um framtíð Jökuls horft við Emil?
„Við erum allir mjög ánægðir með Jökul. Þetta snýst um að liðið sé samstillt og komi með góða orku. Þá ganga hlutirnir miklu betur," segir Emil.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum efst






















