Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 01. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Konate með nokkur tilboð frá Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Ibrahima Konate er með nokkur tilboð frá Sádi-Arabíu en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Þessi 27 ára gamli miðvörður yfirgefur Liverpool þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.

Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær og sendi Frakkinn frá sér hjartnæma kveðju til stuðningsmanna í kjölfarið.

Romano segir að Konate muni hafa úr mörgum tilboðum að velja, en hann er þegar kominn með nokkur frá Sádi-Arabíu sem hann er að skoða.

Real Madrid hafði áhuga á að fá hann í nóvember en stöðvaði viðræður af virðingu við Liverpool.

Paris Saint-Germain hefur einnig verið nefnt en varnarmaðurinn er fæddur og uppalinn í París og lék með unglingaliðum Paris FC.
Slapp
banner