Thelma Karen Pálmadóttir skoraði annað mark Hacken þegar liðið vann Kristianstad 3-0 í sænsku deildinni í dag. Thelma var í byrjunarliði Hacken ásamt Fanney Ingu Birkisdóttur.
Alexandra Jóhannsdóttir og Linda Líf Boama voru í byrjunarliði Kristianstad. Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik.
Alexandra Jóhannsdóttir og Linda Líf Boama voru í byrjunarliði Kristianstad. Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik.
Guðrún Arnardóttir lagði upp fyrra mark Hammarby í 2-1 sigri liðsins gegn Vittsjo.
Hammarby er á toppnum með 24 stig eftir átta umferðir. Hacken er í 2. sæti með 21 stig og Kristianstad er í 7. sæti með 11 stig.


