Þremur leikjum er lokið í sjöundu umferð Lengjudeildarinnar en þeim var að ljúka. Ægir hefur unnið tvo leiki í röð eftir sigur á Völsungi á Húsavík. Fyrstu tvö mörkin komu með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik.
Harley Willard skoraði fyrsta markið með fínu skoti og Markús Máni bætti síðan öðru markinu við þegar hann slapp einn í gegn og skoraði örugglega.
Völsungur lá á Ægismönnum í seinni hálfleik en það var Jordan Adeyemo sem skoraði á opið markið. Steinþór Freyr Þorsteinsson náði að klóra í bakkann strax í kjölfarið eftir sendingu frá Elfari Árna Aðalsteinssyni.
Völsungur pressaði enn frekar á Ægismenn þegar Xabier Cardenas Anorga skoraði annað mark liðsins í uppbótatíma en nær komust þeir ekki.
ÍR fékk Vestra í heimsókn. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur en Konstantin Cheshmedjiev kom Vestra yfir snemma í seinni hálfleik.
Hann átti skot af löngu færi og boltinn fór beint á Vilhelm Þráinn Sigurjónsson sem tókst ekki að halda boltanum og hann endaði í netinu.
ÍR-ingar voru líklegri til að jafna metin en Vestri að bæta við en 1-0 urðu lokatölur.
Þá fékk Njarðvík Gróttu í heimsókn. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér almennilegt færi í fyrri hálfleik en gestirnir komust yfir strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Grímur Ingi Jakobsson skoraði með glæsilegu skoti.
Grótta hélt áfram að skapa sér færi en Njarðvík tókst að jafna metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Arnleifur Hjörleifsson átti fyrirgjöf og Hrafn Guðmundsson skallaði boltann í netið.
Alexander Helgi Sigurðarson var nálægt því að koma Njarðvíkingum yfir stuttu síðar en skaut í stöngina af stuttu færi.
Það var hins vegar Grótta sem fór með sigur af hólmi þar sem Axel Sigurðarson skoraði stórkostlegt sigurmark í lokin. Hann fékk boltann eftir innkast og hann tók boltann á kassann og ákvað að negla honum í átt að marki og boltinn fór í slá og inn.
Völsungur 2 - 3 Ægir
0-1 Harley Bryn Willard ('14 )
0-2 Markús Máni Jónsson ('16 )
0-3 Jordan Adeyemo ('80 )
1-3 Steinþór Freyr Þorsteinsson ('82 )
2-3 Xabier Cardenas Anorga ('91 )
Lestu um leikinn
ÍR 0 - 1 Vestri
0-1 Konstantin Cheshmedjiev ('50 )
Lestu um leikinn
Njarðvík 1 - 2 Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson ('49 )
1-1 Hrafn Guðmundsson ('83 )
1-2 Axel Sigurðarson ('90 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|



