Fram er það lið sem hefur dreift markaskoruninni betur en nokkurt annað lið í Bestu deildinni. Freyr Sigurðsson varð fjórtándi markaskorari Framara í deildinni er hann skoraði gegn Breiðabliki á föstudag.
Næsta lið þar á eftir er KR með tólf mismunandi markaskorara en Vesturbæingar hafa þó skorað tólf mörkum meira en Fram.
Kennie Chopart er nokkuð óvænt markahæsti leikmaður liðsins með sex mörk en þar á eftir kemur Atli Þór Jónasson með þrjú mörk.
Svona hafa mörk Framara dreifst: Kennie Chopart (6), Atli Þór Jónasson (3), Jakob Byström (2), Sigurjón Rúnarsson (2), Þorri Stefán Þorbjörnsson (2), Vuk Oskar Dimitrijevic (2), Ægir Jarl Jónasson (1), Bjarni Páll Linnet Runólfsson (1), Fred Saravia (1), Freyr Sigurðsson (1), Kristófer Konráðsson (1), Kyle McLagan (1), Róbert Hauksson (1) og Simon Tibbling (1).

Fjöldi marka og markaskorara
Fram - 25 mörk, 14 markaskorarar
KR - 38 mörk, 12 markaskorarar
Breiðablik - 22 mörk, 10 markaskorarar
ÍBV - 14 mörk, 9 markaskorarar
Stjarnan - 18 mörk, 9 markaskorarar
Valur - 19 mörk, 9 markaskorarar
Víkingur R. - 34 mörk, 9 markaskorarar
KA - 12 mörk, 8 markaskorarar
FH - 12 mörk, 7 markaskorarar
Keflavík - 12 mörk, 6 markaskorarar
ÍA - 12 mörk, 5 markaskorarar
Þór - 7 mörk, 6 markaskorarar