Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þetta eru mögulegir andstæðingar Stjörnunnar í Sambandsdeildinni
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mætir Stjarnan Albönunum í Vllaznia?
Mætir Stjarnan Albönunum í Vllaznia?
Mynd: Skjáskot/Valur
Stjarnan mun komast að því 16. júní hvaða andstæðing liðið mun fá í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.

52 lið verða í drættinum og er þeim skipt í efri og neðri styrkleikaflokk. Stjarnan verður í neðri styrkleikaflokki og leikirnir munu fara fram 9. og 16. júlí.

Í efri styrkleikaflokknum eru þrjú lið sem Stjarnan hefur mætt á síðustu árum. 2019 sló Stjarnan Levadia frá Eistlandi úr keppni og mætti svo Espanyol. 2024 sló svo Stjarnan lið Linfield frá Norður-Írlandi úr keppni en tapaði svo gegn Paide frá Eistlandi.

Það á reyndar eftir að svæðisskipta drættinum, og kemur sú skipting betur í ljós þegar nær dregur drættinum.

Valur kemur inn í forkeppni Sambandsdeildarinnar í 2. umferð.

Efri styrkleikaflokkur (Seeded)
RFS (Lettland)
Astana (Kasakstan)
Žalgiris (Litháen)
Shkëndija (Norður-Makedónía)
Pyunik (Armenía)
Ballkani (Kósovó)
Linfield (Norður-Írland)
Spartans (Malta)
Milsami Orhei (Moldavía)
Levadia (Eistland)
Paide Linnameeskond (Eistland)
Differdange 03 (Lúxemborg)
Dinamo Minsk (Belarús)
Vllaznia (Albanía)
Neftçi (Aserbaísjan)
Víkingur (Færeyjar)
La Fiorita (San Marinó)
Decic (Svartfjallaland)
Dila Gori (Georgía)
BATE Borisov (Belarús)
Sarajevo (Bosnía-Hersgóvína)
Atlètic Club d'Escaldes (Andorra)
St Joseph's (Gíbraltar)
Dinamo Tbilisi (Georgía)
Alashkert (Armenía)
Torpedo Kutaisi (Georgía)
Slapp
banner
banner