„Jákvætt og neikvætt," sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 5-3 tap fyrir KR í dag.
„Ég var óánægður með byrjunina, við töluðum um að vera fastir fyrir og þéttir en því miður þá var staðan 2-0 fyrir KR og við ekki búnir að brjóta einu sinni á þeim eftir 10 mínútur. Þeir komu nákvæmlega með það sem við vissum, þannig það var svekkjandi. Við förum svo inn í hálfleikinn 3-0 undir eftir mark á síðustu sekúndu sem var ódýrt. Við ræddum vel saman um hvað við ætluðum að gera í seinni hálfleik og hvernig maður bregst við svona stöðu.
Mér fannst seinni hálfleikurinn mjög flottur, við komum til baka og staðan er 4-3, við með mómentið mér fannst þeir orðnir hræddir. Þá kemur markmaðurinn með 'match winning' markvörslu þegar Jeppe er að setja hann upp í hornið. Svo eru þarna tveir dómar sem ég þarf bara að skoða. Ég hefði viljað fá rautt spjald á KR-inginn en dómarinn segir að boltinn er á leiðinni frá markinu. Hann er ekki á leiðinni út á hornfána eða neitt þannig og hann er kominn einn í gegn. Mér fannst þetta vera rautt en ég er þjálfari KA þannig ég leyfi öðrum að dæma um það. Svo í lokin þegar Jakob er togaður niður. Ég er búinn að tala við Jakob, hann togar í hann þegar hann er kominn inn fyrir. Ég held að það sé víti og rautt, en það dettur ekki með okkur. Jákvætt að við komum til baka jákvætt að við skorum þrjú mörk á útivelli. En byrjunin fór því miður með leikinn," sagði Hallgrímur.
Hallgrímur talar um þessi stóru atvik sem höfðu mikil áhrif á leikinn en það var fleira sem hann var ekki hrifinn af hjá dómara leiksins.
„Nú stend ég hérna og er ekki búinn að sjá þetta aftur, ég veit ekkin hvernig þetta er. Ég vona að þeir hafi haft rétt fyrir sér en við upplifðum aðeins annað. Það sem fór meira í taugarnar á mér, er það að það er búið að tala um það í íslenskum fótbolta með nýjum reglum að það eigi að flýta leiknum. Mér finnst það reglulega og líka í dag, að liðið sem er yfir það fær að stoppa það að hitt liðið getur sett leikinn í gang. Það stendur fyrir, það sparkar boltanum burt og ekkert gert í því. Ég held ég hafi talið sjö skipti í dag, og það finnst mér eitthvað sem dómararnir verða að laga. Því það getur ekki verið rétt að lið geti sparkað menn niður og passa svo að þeir geti ekki sett boltann í gang, það er ekki að flýta leiknum. Það fór meira í taugarnar á mér, af því ég get ekki staðið hérna og hef ekki séð atvikin, og talað um að þetta eigi að vera rautt. Við upplifðum það þannig en getum ekkert gert í því.
Ég er ánægður með hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn og ánægður með að við náðum að gera leik úr þessu. Svo þurfum við bara að fara heim og vinna í okkar málum. Við eigum ennþá smá í land, það vita allir, við erum búnir að standa okkur fínt, en fram á við þurfum við að gera betur. Við erum með næst fæst mörk fengin á okkur í deildinni, þrátt fyrir að við erum að spila ungum strák sem er búinn að standa sig frábærlega. Við erum búnir að lenda í meiðslum í báðum bakvörðum, sex leikmenn búnir að slíta krossband, þrír, fjórir miðjumenn farnir frá því í fyrra þannig að mér finnst magnað hvað við höfum fengið fá mörk á okkur í deildinni. Það er jákvætt en sóknarlega þurfum við að gera betur. Það er ágætt að við skorum þrjú mörk í dag, við tökum það með okkur," sagði Hallgrímur.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
























