Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 01. júní 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Þróttur og Grindavík freista þess að komast aftur á sigurbraut
Þróttarar hafa ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum
Þróttarar hafa ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þróttur og Grindavík mætast í 7. umferð Lengjudeildar karla á AVIS-vellinum klukkan 19:15 í kvöld.

Spámenn Fótbolta.net spáðu Þrótturum efsta sæti deildarinnar og fór tímabilið mjög vel af stað. Liðið vann fyrstu þrjá leikina, en er nú án sigurs í síðustu þremur.

Grindavík hefur ekki unnið í síðustu tveimur leikjum sínum en Þróttur er með 10 stig í deildinni á meðan Grindavík er með 7 stig.

KFG tekur á móti Fjölni í 2. deild karla. Fjölnir hefur unnið þrjá og tapað einum á meðan KFG hefur aðeins unnið einn og tapað þremur.

Leikir dagsins:

Lengjudeild karla
19:15 Þróttur R.-Grindavík (AVIS völlurinn)

2. deild karla
19:15 KFG-Fjölnir (Samsungvöllurinn)

3. deild karla
19:15 KH-Árbær (Valsvöllur)
19:15 Víðir-Ýmir (Nesfisk-völlurinn)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fylkir 6 5 0 1 11 - 3 +8 15
2.    Afturelding 6 4 1 1 17 - 12 +5 13
3.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
4.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
10.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
11.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner
banner