Alex Freyr Hilmarsson var í byrjunarliði NSÍ Runavík sem tapaði á grátlegan hátt gegn AB Argir í færeysku deildinni í kvöld.
NSÍ jafnaði metin í 2-2 á 70. mínútu en sigurmarkið kom í uppbótatíma. Alex Freyr var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik, Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari liðsins.
NSÍ jafnaði metin í 2-2 á 70. mínútu en sigurmarkið kom í uppbótatíma. Alex Freyr var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik, Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari liðsins.
NSÍ er í 3. sæti með 26 stig eftir 12 umferðir. Liðið er með jafn mörg stig og KÍ Klaksvík og B36 sem eru í tveimur efstu sætunum.
Hinrik Harðarson kom inn á eftir hálftíma leik þegar Odd vann 3-0 sigur á Lyn í næst efstu deild í Noregi. Odd er á toppnum meeð 22 stig eftir tíu umferðir.

