Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Inter standi til boða að fá Harry Maguire til félagsins.
Það má búast við breytingum á varnarlínu Inter í sumar en nokkrir leikmenn munu yfirgefa tvöföldu meistarana. Liðið vann deildina og bikarinn á fyrsta heila tímabili Cristian Chivu sem stjóri liðsins
Það má búast við breytingum á varnarlínu Inter í sumar en nokkrir leikmenn munu yfirgefa tvöföldu meistarana. Liðið vann deildina og bikarinn á fyrsta heila tímabili Cristian Chivu sem stjóri liðsins
Francesco Acerbi og Matteo Darmian munu yfirgefa félagið í sumar þegar samningar þeirra renna út. Stefan De Vrij er einnig sagður mögulega á förum og þá er Yann Bisseck orðaður við Bayern.
Inter hefur áhuga á Tarik Muharemovic, leikmanni Sassuolo, en Sassuolo vill bíða fram yfir HM með að hefja viðræður. Oumar Solet, miðvörður Udinese, er efstur á óskalista Inter.



