„Virkilega góð tilfinning, mér fannst vera sjálfstraust í liðinu, spiluðum vel og ég er mjög ánægður með þennan leik," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir fyrsta deildarsigur liðsins eftir sjö leiki án sigurs.
Byrjunin var ekki frábær hjá Stjörnunni.
„Mér fannst orkustigið inn á vellinum rosalega lágt, það heyrðist ekkert inn á vellinum og ekkert fyrir utan. Ég veit ekki hvað það var, en mér fannst ég sjá eftir 10-15 mínútur að þetta stefndi í gott þó að þeir hafi komist yfir."
Byrjunin var ekki frábær hjá Stjörnunni.
„Mér fannst orkustigið inn á vellinum rosalega lágt, það heyrðist ekkert inn á vellinum og ekkert fyrir utan. Ég veit ekki hvað það var, en mér fannst ég sjá eftir 10-15 mínútur að þetta stefndi í gott þó að þeir hafi komist yfir."
Lestu um leikinn: Þór 1 - 3 Stjarnan
Að sjá þessa frammistöðu þegar bakið hjá mönnum er upp við vegg, hvernig er það?
„Ég er mjög ánægður með það. Mér fannst við undir sérstaklega í fyrri hálfleiknum gegn Víkingi og í leikjunum tveimur þar á undan var aðeins lægra orkustig, ekki sami kraftur og við eigum að sjá. Mér fannst helvíti sterkt að lenda undir og sjá þessa trú og sjálfstraust. Það var enginn vafi í hálfleik, bara haldið áfram."
„Við áttum inni í xG-inu að setja eitthvað inn í markið. Það er gaman að sjá svona mörk, þessi gæði eru í liðinu. Svo var gott liðsmark í lokin," segir Jökull en fyrri tvö mörkin voru af dýrari gerðinni.
Jökull vísaði í leik Arsenal og PSG í Meistaradeildinni þegar hann ræddi um spilamennsku Þórs í leiknum í dag. Hann hrósaði Þór fyrir sína spilamennsku.
„Mér fannst við sterkara liðið í dag, en þeir eru vel þjálfað lið, eru trúir sínu og halda áfram. Þeir fóru ekki að leggjast og pakka, það hefði verið alltof langt (eftir til þess). Við að einhverju leyti sáum dæmi um þannig leik í gær (þegar Arsenal féll til baka). Þeir eru trúir sínu og héldu áfram. Mér finnst það sterkt og ég er hrifinn af því, ég hef engar áhyggjur af Þórsliðinu. Ég held að þeir muni stíga upp."
Jökull ræddi um dómgæsluna í leiknum og hvort hann hafi litið á leikinn sem úrslitaleik fyrir sig. Þau svör má sjá í spilaranum efst þar sem hægt er að sjá allt viðtalið.























