„Frábær leikur hjá liðinu, frábær liðsheild sem skóp þennan sigur. Grimmir frá fyrstu mínútu og unnum þetta saman, það er það sem skilaði þessu, mikil trú á verkefnið og frábær liðsheild" sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar eftir 5-1 heima sigur gegn Fylki.
Lestu um leikinn: Afturelding 5 - 1 Fylkir
Hvernig fannst þér leikurinn spilast?
„Fylkismenn eru með mjög öflugt lið og þeir komu mjög öflugir. Mér fannst þeir opnast aðeins þegar við komumst yfir, þá fylgdi fleiri mörk í kjölfarið. En Fylkir eru búnir að fá þrjú mörk á sig í fyrstu sex leikjunum, við vissum að þetta yrði mjög erfiður leikur í dag. Það gekk mikið hjá okkur, við erum mjög öflugir í teignum og í föstum leikatriðum og öðru. Þannig að þetta var frábær leikur hjá liðinu og skilaði þessum þremur stigum."
Maggi var 100% á því að mark Fylkis var ekki inni.
„Ef það væri marklínutækni í lengjudeildinni, þá er ég hundrað prósent á því að þeir hefðu ekki skorað í dag. Boltinn var aldrei inni hjá þeim, ég er búin að fá að skoða bæði video og tala við menn sem stóðu við línuna. Hann er aldrei allur inni, boltinn er varla inn við línuna og Birkir stendur á línunni, hann getur ekkert annað en að hafa bjargað þessu á frábæran hátt. Það var svekkjandi að fá mark á okkur, því að mér fannst varnarleikurinn verðskulda hreint lak."
Er stígandi með liðinu?
„Já mér finnst það. Mér finnst við vera vaxandi og erum búnir að vera vaxandi eiginlega síðan í vetur en með tveimur undantekningum sem voru fyrstir tveir leikirnir á þessu móti sem við vorum ekki nægilega góðir í. Mér fannst viðbrögðin við því frábær hjá liðinu, hvernig menn hafa tekið sig saman í andlitinu og liðsheildin hefur verið frábær síðan þá. Geggjað hvernig strákarnir hafa brugðist við og mikil gleði komin í spilið okkar. Við erum á góðum stað núna en við viljum meira."
























