Framtíð Federico Chiesa hjá Liverpool hefur verið í óvissu nánast frá því hann gekk til liðs við félagið frá Juventus árið 2024.
Hann kom við sögu í 36 leikjum á síðustu leiktíð og kom að sex mörkum. Hann var aðeins fimm sinnum í byrjunarliðinu, þar af einu sinni í úrvalsdeildinni.
Hann kom við sögu í 36 leikjum á síðustu leiktíð og kom að sex mörkum. Hann var aðeins fimm sinnum í byrjunarliðinu, þar af einu sinni í úrvalsdeildinni.
Ítalski miðillinn Calciomercato segir að ítalska félagið Como sé tilbúið að bjóða í hann.
Como tryggði sér sæti í Meistaradeildinni undir stjórn Cesc Fabregas á nýliðnu tímabili. Það eru fáir Ítalir í hópnum en liðið þarf fleiri til að skrá hópinn í Meistaradeildina.
Milan, Roma og Napoli hafa öll sýnt Chiesa áhuga áður.




