Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Atlético fékk tilboð frá Barcelona
Mynd: EPA
Spænska félagið Barcelona fullyrðir að það hafi sent Atlético Madríd 100 milljóna evra tilboð í argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez, þvert á yfirlýsingar Madrídarliðsins.

Börsungar hafa verið mjög áræðnir í tilraunum sínum til að fá Alvarez frá Atlético í sumarglugganum og Madrídingar svöruðu því af hörku.

Félagið fór að birta myndir af leikmönnum Barcelona í Atlético-treyju og segja að þeir væru á leiðinni til félagsins. Þá sakaði Atlético Spánarmeistarana um að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að gera Alvarez óánægðan hjá félaginu.

Forráðamenn Atlético eru ósáttir við aðferðir Barcelona og beindu einnig spjótum sínum að ítalska blaðamanninum Fabrizio Romano. Þeir telja hann hjálpa Barcelona í þessari herferð með því að birta færslur um áform félagsins um að næla í Alvarez.

Atlético sagði meðal annars að Barcelona hefði aldrei lagt fram tilboð í Alvarez, en Börsungar fullyrða í viðtali við Mundo Deportivo að þeir hafi sent Mateu Alemany, yfirmanni fótboltamála hjá Atlético, tilboðið í gegnum tölvupóst.

Sérstakur póker sem er í gangi hjá félögunum. Einhverjir miðlar halda því fram að Atlético sé opið fyrir því að selja Alvarez, en þó aðeins ef tilboð upp á 150 milljónir evra eða meira berst félaginu.

Það er óvíst hvort Barcelona geti pungað út þeirri fjárhæð, en Atlético hefur að minnsta kosti útilokað þann möguleika að dreifa greiðslunum yfir nokkur ár.
Slapp
banner
banner