Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir PSG og Arsenal: Declan Rice valinn bestur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
PSG vann Meistaradeildina annað árið í röð eftir sigur á Arsenal í vítaspyrnukeppni.

Declan Rice hefur verið algjör lykilmaður hjá Englandsmeisturunum á þessu tímabili en hann var maður leiksins að mati Sky Sports og fékk átta í einkunn. Gabriel, sem klikkaði á vítaspyrnu sem tryggði PSG sigurinn, fékk sjö ásamt þremur öðrum leikmönnum liðsins.

PSG gekk illa að brjóta vörn Arsenal á bak aftur en Ousmane Dembele skoraði mark liðsins úr vítaspyrnu. Hann fær sex í einkunn en sex leikmenn PSG fá sjö.

PSG: Safonov (6), Hakimi (6), Pacho (6), Marquinhos (7), Nuno Mendes (6), Fabian Ruiz (7), Vitinha (7), Joao Neves (6), Doue (7), Kavratskhelia (7), Dembele (6).
Varamenn: Beraldo (5), Zabarnyi (5), Ramos (5), Barcola (7), Zaire-Emery (5).

Arsenal: Raya (7), Mosquera (6), Saliba (7), Gabriel (7), Hincapie (6), Rice (8), Lewis-Skelly (6), Odegaard (6), Saka (6), Trossard (6), Havertz (7).
Varamenn: Eze (6), Martinelli (5), Timber (5), Gyokeres (5), Madueke (6), Zubimendi (6).
Slapp
banner
banner