Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingur í efri styrkleikaflokki - Geta mætt liðum sem þeir hafa sigrað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistararnir í Víkingi verðua í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í 1. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni þann 16. júní. Það er vegna góðs árangurs liðsins síðustu ár í Evrópuleikjum.

Liðið getur því einungis mætt liðum sem eru í neðri styrkleikaflokknum. Þar eru öflug lið eins og búlgörsku meistararnir í Levski Sofia, Kauno Zalgiris frá Litháen og ungversku meistararnir í ETO Györ. Þar er einnig Inter Club d'Escaldes sem Víkingur sigraði 2022 og Egnatia sem Víkingur sigraði 2024.

Þegar nær dregur drættinum verða liðin í drættinum skipt upp í þrjá hópa og þá kemur enn betur í ljós hvaða liðum Víkingur getur mætt.

Leikirnir verða spilaðir 7./8. júlí og svo 14./15. júlí. Ef Víkingur fer áfram getur liðið svo mætt liðum eins og Rauðu Stjörnunni (Serbía), Dinamo Zagreb (Króatía), Slovan Bratislava (Slóvakía) og Lech Poznan (Pólland).

Efri styrkleikaflokkur (seeded)
Shamrock Rovers (Írland)
KuPS (Finnland)
Drita (Kósovó)
Lincoln Red Imps (Gíbraltar)
Borac Banja Luka (Bosnía-Hersegóvína)
Víkingur Reykjavík (Ísland)
Kairat (Kasakstan)
Universitatea Craiova (Rúmenía)
Riga (Lettland)
KÍ (Færeyjar)
Flora (Eistland)
Larne (Norður-Írland)
Petrocub Hîncesti (Moldavía)
The New Saints (Wales)

Neðri styrkleikaflokkur (unseeded)
Inter Club d'Escaldes (Andorra)
Levski Sofia (Búlgaría)
Ararat-Armenia (Armenía)
Sabah (Aserbaísjan)
Kauno Žalgiris (Litháen)
Sutjeska (Svartfjallaland)
ETO Györ (Ungverjaland)
Iberia 1999 (Georgía)
Egnatia (Albanía)
Floriana (Malta)
Tre Fiori (San Marínó)
Vardar (Norður-Makedónía)
ML Vitebsk (Belarús)
Atert Bissen (Lúxemborg)
Slapp
banner