Grótta vann dramatískan 2-1 sigur á Njarðvík í Lengjudeildinni í gær. Liðið er nú í 4. sæti deildarinnar eftir sjö umferðir.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Seltirningar komust yfir snemma í síðari hálfleik eftir frábært skot Gríms Inga Jakobssonar.
Njarðvíkingar jöfnuðu þá metin þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Á 90. mínútu gerði Axel Sigurðarson sér lítið fyrir og skoraði stórbrotið sigurmark.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Seltirningar komust yfir snemma í síðari hálfleik eftir frábært skot Gríms Inga Jakobssonar.
Njarðvíkingar jöfnuðu þá metin þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Á 90. mínútu gerði Axel Sigurðarson sér lítið fyrir og skoraði stórbrotið sigurmark.
Lestu um leikinn: Njarðvík 1 - 2 Grótta
ÓTRÚLEGT MARK!!!!!!
Grótta tekur innkastið á Axel sem tekur illa á móti boltanum og ákveður bara að skjóta og sá hitti hann á ótrúlegan hátt sláin, stöngin inn. Guy Smit átti ekki séns í þetta. Þetta verður 100% eitt af mörkum tímabilsins, skrifaði Kristján Hrafn Kristjánsson, fréttaritari Fótbolta.net, í textalýsingu sinni.
Í lýsingunni á síðara markinu var fullyrt að það væri mark ársins en Livey hefur birt myndskeið af mörkunum tveimur og má sjá þau hér fyrir neðan.
Grótta sótti 3 stig í Njarðvík en gerðu það heldur betur með stæl. Þvílík mörk hjá Grím og Axel. BÆNG pic.twitter.com/Igz0dI4i1D
— Livey (@liveyevents) May 31, 2026
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Þróttur R. | 8 | 5 | 1 | 2 | 19 - 10 | +9 | 16 |
| 2. Afturelding | 8 | 5 | 1 | 2 | 23 - 15 | +8 | 16 |
| 3. HK | 8 | 5 | 0 | 3 | 16 - 14 | +2 | 15 |
| 4. Fylkir | 8 | 5 | 0 | 3 | 13 - 11 | +2 | 15 |
| 5. Vestri | 8 | 4 | 1 | 3 | 16 - 16 | 0 | 13 |
| 6. Leiknir R. | 8 | 3 | 3 | 2 | 11 - 10 | +1 | 12 |
| 7. Grótta | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 15 | -1 | 12 |
| 8. Njarðvík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 7 | +4 | 11 |
| 9. Grindavík | 7 | 1 | 4 | 2 | 7 - 9 | -2 | 7 |
| 10. Ægir | 8 | 2 | 1 | 5 | 9 - 14 | -5 | 7 |
| 11. ÍR | 8 | 2 | 1 | 5 | 16 - 22 | -6 | 7 |
| 12. Völsungur | 8 | 0 | 2 | 6 | 5 - 17 | -12 | 2 |




