Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verður Pedro Porro í samkeppni við Alexander-Arnold?
Mynd: EPA
Dani Carvajal yfirgefur Real Madrid þegar samningur hans við félagið rennur út um mánaðarmótin.

Félagið er því í leit að manni sem mun berjast við Trent Alexander-Arnold um hægri bakvarðarstöðuna.

Fabrizio Romano greinir frá því að Denzel Dumfries, leikmaður Inter, og Pedro Porro, leikmaður Tottenham, séu á óskalista spænska félagsins.

Þá fylgist Real Madrid einnig með Ivan Fresneda, leikmanni Sporting, en hann var í akademíu Real Madrid á sínum yngri árum.
Slapp
banner