Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 18:29
Brynjar Ingi Erluson
Konate sendi frá sér hjartnæma kveðju - „Elska ykkur öll“
Ibrahima Konate
Ibrahima Konate
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Ibrahima Konate kvaddi Liverpool og stuðningsmenn þess með langri yfirlýsingu á samfélagsmiðlum í dag.

Liverpool staðfesti í dag að Konaté yfirgefi félagið þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.

Konaté, sem er 27 ára gamall, var í samningsviðræðum við félagið og fyrir mánuði var útlit fyrir að hann myndi framlengja samninginn. Aðilarnir náðu þó á endanum ekki samkomulagi.

Því er ljóst að hann er á förum, en hann hefur sent langa og hjartnæma kveðju til stuðningsmanna Liverpool.

„Elsku Liverpool,

Fyrir fimm árum kom ég hingað sem ungur leikmaður með stóra drauma. Í dag yfirgef ég félagið með minningar sem ég mun varðveita að eilífu.

Það hefur verið heiður að spila undir merkjum félagsins. Við höfum deilt ótrúlegum augnablikum saman. Hæðum og lægðum, titlum, áskorunum, ævilöngum vinasamböndum og grátlegum augnablikum sem munu fylgja okkur að eilífu. Ekkert var sársaukafyllra en að missa bróður okkar, Diogo.

Að missa föður minn á þessu ári var einn erfiðasti kafli lífs míns, en í gegnum erfiðleikana breyttist skuldbinding mín við félagið aldrei. Jafnvel á erfiðustu augnablikunum gaf ég allt mitt fyrir merkið.

Ég vil þakka liðsfélögunum, þjálfurunum, starfsfólkinu og öllum á bak við tjöldin fyrir að hjálpa mér að vaxa og dafna.

Til ykkar stuðningsmanna: Takk fyrir ástina, orkuna og ótrúlegan stuðning ykkar. Anfield er svo sannarlega sérstakur staður og að spila fyrir framan ykkur var eitthvað sem ég tók aldrei sem sjálfsögðum hlut. Það særir mig djúpt að hafa ekki fengið tækifæri til að kveðja ykkur í síðasta leiknum. Á því augnabliki hafði ég ekki hugmynd um hvort þetta yrði í síðasta sinn sem ég spilaði í treyjunni fyrir framan ykkur.

Frá mínum dýpstu hjartarótum vil ég þakka ykkur fyrir allt. Ég elska ykkur öll og Liverpool mun fylgja mér hvert sem ég fer. Þetta er ekki auðveld kveðja, en það er kominn tími á nýjan kafla og nýja áskorun.

Sjáumst bráðlega aftur, með Guðs vilja. YNWA,“ skrifaði Konaté.
Slapp
banner
banner