Leiknir R. 4 - 1 HK
1-0 Birnir Breki Burknason ('28 )
2-0 Djorde Vladisavljevic ('41 )
3-0 Shkelzen Veseli ('45 )
4-0 Shkelzen Veseli ('60 )
4-1 Dominik Radic ('62 )
Rautt spjald: Brynjar Björn Gunnarsson, Leiknir R. ('45) Lestu um leikinn
1-0 Birnir Breki Burknason ('28 )
2-0 Djorde Vladisavljevic ('41 )
3-0 Shkelzen Veseli ('45 )
4-0 Shkelzen Veseli ('60 )
4-1 Dominik Radic ('62 )
Rautt spjald: Brynjar Björn Gunnarsson, Leiknir R. ('45) Lestu um leikinn
Leiknismenn unnu annan leik sinn í Lengjudeildinni er liðið hafði sigur gegn HK, 4-1, á Leiknisvellinum í efra Breiðholti í kvöld.
Birnir Breki Burknason skoraði fyrsta mark Leiknis á 28. mínútu leiksins. Ólafur Örn Ásgeirsson, markvörður HK, var í gjafastuði og búinn að gera nokkur mistök áður en hann tapaði boltanum rétt fyrir utan teig og skoraði Birnir.
Heimamenn skoruðu tvö mörk með stuttu millibili undir lok fyrri hálfleiks. Djorde Vladisavljevic skoraði á 41. mínútu. Shkelzen Veseli tók spyrnuna á Anton Fannar Kjartansson sem fór upp að endalínu og kom boltanum á Djorde sem setti boltann í markið og þá gerði Veseli þriðja markið áður en hálfleikurinn var úti.
Þorsteinn Emil Jónsson sendi boltann á Veseli sem potaði boltanum framhjá Ólafi Erni sem var kominn út úr markinu og lagði boltann ó opið markið.
Undir lok hálfleiksins kom upp sérstakt atvik. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt er hann truflaði innkast hjá gestunum. Hann tók upp boltann og lék sér með hann áður en honum var vísað af velli.
Leiknismenn settu þriðja markið á 60. mínútu. Gæðin í Veseli skinu út í gegn. Hann færði boltann frá hægri yfir á vinstri og smurði boltann í samskeytin.
Dominik Radic reyndi að kveikja í HK-ingum með marki tveimur mínútum síðar. HK fékk í kjölfarið nokkur góð færi til þess að koma sér betur inn í leikinn, en Atli Þór Gunnarsson setti boltann í stöng og þá varði Ólafur Íshólm Ólafsson í tvígang í sömu sókninni.
Heimamenn héltu þessu örugglega út og verðskulduðu annan sigur tímabilsins. Liðið er í 7. sæti deildarinnar með 9 stig en HK í 3. sæti með 12 stig.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Fylkir | 6 | 5 | 0 | 1 | 11 - 3 | +8 | 15 |
| 2. Afturelding | 6 | 4 | 1 | 1 | 17 - 12 | +5 | 13 |
| 3. HK | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 13 | +1 | 12 |
| 4. Grótta | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 15 | -1 | 12 |
| 5. Þróttur R. | 6 | 3 | 1 | 2 | 14 - 9 | +5 | 10 |
| 6. Vestri | 7 | 3 | 1 | 3 | 11 - 15 | -4 | 10 |
| 7. Leiknir R. | 7 | 2 | 3 | 2 | 8 - 10 | -2 | 9 |
| 8. Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 6 - 6 | 0 | 8 |
| 9. Grindavík | 6 | 1 | 4 | 1 | 7 - 7 | 0 | 7 |
| 10. ÍR | 7 | 2 | 1 | 4 | 15 - 17 | -2 | 7 |
| 11. Ægir | 7 | 2 | 1 | 4 | 9 - 11 | -2 | 7 |
| 12. Völsungur | 7 | 0 | 2 | 5 | 4 - 12 | -8 | 2 |



