Billy Gilmour, miðjumaður Napoli, mun ekki fara með skoska landsliðinu á HM eftir að hafa meiðst í æfingaleik gegn Curacao í gær.
Steve Clarke, þjálfari skoska liðsins, sagði í viðtali eftir leik að hann væri hræddur um að miðjumaðurinn gæti misst af mótinu.
Skoska fótboltasambandið staðfesti síðar að um hnémeiðsli væri að ræða og hann gæti ekki tekið þátt á mótinu.
Hann snýr því aftur til Ítalíu til að jafna sig og fara í endurhæfingu í von um að ná undirbúningstímabilinu með liðinu.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



