Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
banner
   þri 02. júní 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fer Rashford til Arsenal?
Mynd: EPA
Framtíð Marcus Rashford er í óvissu þessa dagana en hann átti góðu gengi að fagna á láni hjá Barcelona frá Man Utd á nýliðnu tímabili.

Það er útlit fyrir að hann muni hefja æfingar með Man Utd þegar HM lýkur þar sem Barcelona er ekki tilbúið að virkja kaupákvæði í samningi hans.

Daily Mail greinir frá því að Englandsmeistarar Arsenal hafi áhuga á honum og þeir myndu vilja fá hann fyrir rétt verð.

Arsenal ætlar að styrkja sóknarleikinn í sumar en vinstri vængmaðurinn Gabriel Martinelli hefur verið orðaður frá félaginu.
Slapp
banner