Heimild: Vísir
Hólfríður Magnúsdóttir, fyrrum atvinnu og landsliðskona í fótbolta, efnir til happdrættis til styrktar Kolfinnu Rán, 13 ára, sem greindist með krabbamein aðeins tveggja ára gömul og aftur í fyrra.
„Kolfinna var fyrst greind með krabbamein tveggja og hálfs árs og gekk í gegnum sex mánaða lyfjagjöf og fór í yfir þrjátíu geisla. Hún var svæfð í öllum geislunum, frá mánudegi til föstudags, svo var frí um helgar og hún vinnur það, enda algjör nagli,“ sagði Hólmfríður í Bítinu á Bylgjunni.
„Nú síðasta sumar greindist hún aftur og byrjaði í lyfjameðferð, alls átta lyfjameðferðir, og fór síðan til Svíþjóðar í aðgerð. Þar var tekinn stór hluti af lærleggnum, allt upp að mjaðmakúlunni var fjarlægt og í staðinn var settur sérsmíðaður íhlutur sem var framleiddur í Þýskalandi.“
„Hún er ótrúleg, búin að sýna þvílíka seiglu í þessari baráttu og bara úr því að vera þrettán ára stelpa sem mætir í skólann og leikur við vini sína og fer á öll fótboltamót,“ segir Hólmfríður.
Til að styðja við Kolfinnu ákvað Hólmfríður að efna til styrktarlottós og fer allur ágóðinn á framtíðarreikning Kolfinnu.
Lottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Einn miði kostar 2500 krónur.
Reikningsnúmer: 0511-14-120390
Kennitala: 200984-2859
„Þetta byrjaði þannig að ég ætlaði að selja tvær treyjur á uppboði frá Glódísi Perlu, ég hafði samband við hana síðasta sumar og svo var ég bara alltaf með þessar tvær treyjur. Svo núna í þarsíðustu viku ákvað ég að gera þetta aðeins stærra og hafði samband við öll félög sem Olga og Pála, mæður Kolfinnu, hafa spilað með og svo varð þetta bara stærra og stærra. Það er alveg ótrúlegt,“ sagði Hólmfríður en það eru 124 vinningar alls í pottinum.



