Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
   mán 01. júní 2026 22:18
Stefán Marteinn Ólafsson
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Lengjudeildin
Venni og Ray Anthony fallast í faðma fyrir leik
Venni og Ray Anthony fallast í faðma fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur vann öflugan sigur á Grindavík í kvöld þegar 7. umferð Lengjudeildarinnar leið undir lok. 


Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  0 Grindavík

„Svolítið eins og ég bjóst við. Grindavík eru mjög erfiðir að brjóta, þeir eru búnir að tapa einum leik af fyrstu sex og fá bara á sig sjö mörk" sagði Sigurvin ÓIafsson þjálfari Þróttara eftir sigurinn í kvöld.

„Við vorum fannst mér með yfirhöndina en enga yfirburði. Það var mjög kærkomið að ná þessu fyrsta marki og þá þurftu þeir aðeins að stíga upp og við náðum að refsa þeim í seinni hálfleik til þess að klára þetta" 

Þróttur fékk fleiri færi í leiknum og hefði í sjálfu sér ekki verið ósanngjarnt að þeir hefðu unnið leikinn stærra.

„Þeir fá reyndar algjört dauðafæri í stöðunni 1-0 sem að Laddi bjargaði stórkostlega einn á móti markmanni. Þá hefði leikmyndin gjörbreyst" 

„Vissulega hefði ég vilja sjá fleiri mörk en þrjú stig og áfram með lífið" 

Sigrarnir næra og þessi sigur gefur liði Þróttara mikið eftir að hafa hikstað í síðustu umferðum.

„Þú getur alltaf misst stig og maður fer ekki með eintóma sigurleiki í gegnum mótið en það er ákveðin kúnst að díla við töp" 

„Þetta er bara ótrúlega hollt fyrir okkur einmitt sem erum í Þrótti þetta árið með væntingar og pressu að eiga vera góðir. Þá eru töpin einhvernveginn ennþá meira sjokk" 

„Við þurftum svolítið að átta okkur á því að það er bara fullt af öðrum góðum liðum í þessari deild og þó okkur þykir við vera góðir þá verðum við að bera virðingu fyrir því að það er ekki nóg að mæta bara á völlinn. Það þarf að leggja sig allan fram og fótboltinn breytist ekkert þó að ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti. Það þarf alltaf að vinna grunngildin og við fundum þau í dag" sagði Sigurvin Ólafsson. 

Nánar er rætt við Sigurvin Ólafsson í spilaranum hér fyrir ofan.


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 7 5 1 1 22 - 13 +9 16
2.    Fylkir 7 5 0 2 12 - 8 +4 15
3.    Þróttur R. 7 4 1 2 16 - 9 +7 13
4.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
5.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
10.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
11.    Grindavík 7 1 4 2 7 - 9 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner
banner
banner