Grindavík tapaði sínum öðrum leik í kvöld þegar þeir heimsóttu Þrótt Reykjavík í lokaleik 7. umferðar Lengjudeild karla.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Grindavík
„Svekktur, fannst við hafa unnið rosalega vel og það eru bara þessi smáatriði sem við erum aðeins að klikka á" sagði Ray Anthony Jónsson þjálfari Grindvíkinga eftir tapið í kvöld.
„Að elta leikinn er alltaf erfitt og við tökum okkar sénsa að færa liðið aðeins framar og fengum þetta annað mark þannig en heilt yfir þá bara svekktur"
Helsti munurinn á milli liðana var færanýtingin að mati Ray Anthony.
„Ætli það hafi ekki bara verið að nýta færin? Það var helsti munurinn. Við náðum ekki að klára okkar og þeir kláruðu sín færi"
Grindavík hefur að einhverju leyti komið á óvart í upphafi móts en það voru ekki margir sem vissu við hverju ætti að búast frá Grindavíkurliðinu fyrir mót.
„Við erum með marga unga stráka sem að eru mjög góðir. Við vissum alveg að við værum nógu góðir og það vantaði kannski meiri umfjöllun um okkur, jákvæða. Það var mikið í vetur um neikvæða umfjöllun"
„Það reyndar breyttist eftir bikarleikinn á móti Keflavík. Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur. Þetta eru ungir og efnilegir strákar, mjög góðir margir hverjir ásamt nokkrum reynsluboltum þannig þeir verða bara betri og betri með tímanum" sagði Ray Anthony Jónsson.
Nánar er rætt við Ray Anthony Jónsson í spilaranum hér fyrir ofan.
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Afturelding | 7 | 5 | 1 | 1 | 22 - 13 | +9 | 16 |
| 2. Fylkir | 7 | 5 | 0 | 2 | 12 - 8 | +4 | 15 |
| 3. Þróttur R. | 7 | 4 | 1 | 2 | 16 - 9 | +7 | 13 |
| 4. HK | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 13 | +1 | 12 |
| 5. Grótta | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 15 | -1 | 12 |
| 6. Vestri | 7 | 3 | 1 | 3 | 11 - 15 | -4 | 10 |
| 7. Leiknir R. | 7 | 2 | 3 | 2 | 8 - 10 | -2 | 9 |
| 8. Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 6 - 6 | 0 | 8 |
| 9. ÍR | 7 | 2 | 1 | 4 | 15 - 17 | -2 | 7 |
| 10. Ægir | 7 | 2 | 1 | 4 | 9 - 11 | -2 | 7 |
| 11. Grindavík | 7 | 1 | 4 | 2 | 7 - 9 | -2 | 7 |
| 12. Völsungur | 7 | 0 | 2 | 5 | 4 - 12 | -8 | 2 |























