Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 03. júlí 2019 20:21
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Anna María: Ég verð bara í pottinum og í ísbaði næstu daga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli í kvöld á Samsung vellinum í Garðabæ. Anna María Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar sneri til baka eftir tveggja mánaða meiðsli og á hún stóran þátt í því að liðið hélt hreinu í kvöld.

,,Þetta var svona frekar jafnt í fyrrihálfleik fannst mér, svo í seinni sóttu þær aðeins meira en við áttum betri færi fannst mér." sagði Anna María sem taldi þær geta verið sáttar með stigið.

„Það var mjög gott að fá ekki mark á sig en við erum búnar að fá svolítið á okkur núna í seinustu leikjum. Gott að fá bara aftur stig og við getum byggt ofan á það."



Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  0 Þór/KA

Það er búið að vera erfitt fyrir Önnu Maríu að fylgjast með á hliðarlínunni í sumar.

„Það var gott að geta komist loksins inn í þetta og tekið góða æfingaviku og byrjað leikinn og ná að klára hann líka. Ég var mjög sátt með það." 

Anna María segist vera mjög stíf eftir þessar 90 mínútur. „Ég verð bara í pottinum og í ísbaði næstu daga".

Það var ökklinn sem var að angra Önnu Maríu.

„Þetta gerðist svona 3 vikum fyrir mót en ég hélt ég væri tilbúin í fyrsta leik en svo var ég bara að drepast þar þannig ég þurfti bara að taka 2 mánuði í hvíld og nú held ég að ég sé bara tilbúin í restina."

Stjarnan hefur verið að tefla fram ungum stelpum fram á við og það hefur ekki gengið nógu vel að setja mörk. Anna María telur að þær þurfi bara aðeins að anda og að þetta muni koma hjá þeim.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn KR á þriðjudaginn. Þar stefna þær á 3 stig. „Byggjum ofan á þetta" sagði Anna María að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner