Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. nóvember 2019 22:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu þegar tveir leikmenn Ajax fengu rautt spjald
Mynd: Getty Images
Leikur Chelsea og Ajax í Meistaradeildinni í kvöld var hreint út sagt mögnuð skemmtun.

Ajax komst í 4-1, en í stöðunni 4-2 missti hollenska liðið tvo menn af velli með rauð spjöld á nánast sama tíma.

Daley Blind fékk gult spjald fyrir tæklingu á Tammy Abraham, hans annað gula spjald og þar með rautt.

Gianluca Rocchi, ítalskur dómari leiksins, leyfði leiknum að halda áfram eftir brot Blind. Í kjölfarið á brotinu átti Callum Hudson-Odoi skot sem fór í höndina á Joel Veltman.

Rocchi dæmdi vítaspyrnu og gaf Veltman gult spjald, hans annað gula spjald og þar með rautt.

Myndskeið af þessu má sjá hér.

Jorginho skoraði úr vítaspyrnu og jafnaði Reece James metin stuttu síðar. Níu leikmenn Ajax náðu hins vegar að halda út.
Athugasemdir
banner
banner
banner