Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Caroline Murray kveður Þrótt
Kvenaboltinn
Caroline Murray.
Caroline Murray.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sporting Club Jacksonville í Bandaríkjunum hefur tilkynnt að félagið hafi samið við Caroline Murray, sem leikið hefur með Þrótti síðastliðin tvö ár.

Murray hefur spilað stórt hlutverk í liði Þróttar í sumar en liðið er á toppi Bestu deildar kvenna þessa stundina.

Murray er búin að spila alla sjö leiki Þróttar í Bestu deild kvenna í sumar, en hún mun kveðja félagið þegar hlé verður gert á Bestu deildinni vegna EM í sumar.

Sporting Club Jacksonville er nýstofnað atvinnumannalið í bandarísku USL atvinnumannadeildinni. USL deildin er ný af nálinni og í henni leika átta atvinnumannalið frá hausti til vors.

„Það er auðvitað mikill söknuður af Caroline sem verið hefur einn besti leikmaður Þróttar undangengin tvö tímabil. Henni býðst hins vegar tækifæri sem hún hefur lengið beðið eftir og Þróttur vill ekki standa í vegi hennar á þessum tíma. Við óskum henni velfarnaðar í nýju verkefni og vitum að hún á eftir að standa sig vel, enda manneskja sem alltaf gerir sitt allra besta, jafnt innan sem utan vallar," segir Kristján Kristjánsson, formaður knattspyrnudeilar Þróttar.
Athugasemdir