Sem stjóri Manchester City mætti Pep Guardiola 93 liðum. Einungis sex þeirra tókst að koma í veg fyrir tap gegn Guardiola.
Það eru Al-Hilal, Bayer Leverkusen, Bodö/Glimt, Celtic, Lyon og Wigan.
Al-Hilal sigraði City á HM félagsliða síðasta sumar í 16-liða úrslitum keppninnar, Leverkusen og Bodö/Glimt sigruðu City i Meistaradeildinni í vetur.
Celtic og City gerðu jafntefli í báðum leikjum liðanna í Meistaradeildinni 2016, Lyon vann City tvívegis í Meistaradeildinni í þremur leikjum á árunum 2018-2020 og Wigan sigraði City í enska bikarnum 2018.

