Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. júlí 2019 11:58
Brynjar Ingi Erluson
Lemina til í að yfirgefa Southampton
Mario Lemina í leik með Southampton á síðustu leiktíð
Mario Lemina í leik með Southampton á síðustu leiktíð
Mynd: Getty Images
Mario Lemina, landsliðsmaður Gabon og leikmaður Southampton á Englandi, íhugar það alvarlegal að fara frá félaginu í sumar en hann segir frá þessu í samtali við FootMercato.

Lemina er 25 ára gamall miðjumaður sem kom frá Juventus árið 2017 en hann spilaði ekki eins mikið og hann ætlaði sér á síðasta tímabili með dýrlingunum vegna meiðsla.

Hann lék aðeins 21 deildarleik og gerði eitt mark en hann virðist vera að skoða sín mál.

„Ég á enn þrjú ár eftir af samningnum en það er alveg rétt að ég er að skoða aðra möguleika," sagði Lemina.

„Síðustu fjórir mánuðir hafa verið mér erfiðir og Ralph Hassenhüttl er að byggja nýtt lið. Ég vil byrja upp á nýtt og því kjörið tækifæri til að prufa eitthvað annað," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner