Heimild: Morgunblaðið
Kristján Gylfi Guðmundsson, blaðamaður Morgunblaðsins, skrifaði pistil í Morgunblaði dagsins þar sem hann gagnrýndi uppröðun leikja í Bestu deildinni og skoraði á ÍTF og KSÍ að endurskoða fyrirkomulagið.
Hann telur að vinsældir þátta á borð við Doc Zone og Meistaradeildarmessuna í vetur hafi vegið þungt í stefnubreytingunni þar sem fleiri leikir fara nú fram á sama tíma.
Hann telur að vinsældir þátta á borð við Doc Zone og Meistaradeildarmessuna í vetur hafi vegið þungt í stefnubreytingunni þar sem fleiri leikir fara nú fram á sama tíma.
„Er þessi breyting afar umdeild meðal áhangenda deildarinnar.Til að mynda annað kvöld eru fimm leikir í belg og biðu og svo einn stakur leikur á sunnudegi.
Höfundi sem og öðrum fótboltafíklum sem vilja mæta á völlinn og sjá fleiri leiki beint í sjónvarpi er því gert erfiðara um vik að fylgjast vel með og taka þátt í stemningunni,“ kemur meðal annars fram í skrifum Kristjáns.
Ásamt þessum fimm leikjum sem fara fram í Bestu deildinni á morgun fara þrír leikir í Lengjudeild karla og einn í Lengjudeild kvenna jafnframt fram. Eini leikur Bestu deildarinnar á sunnudag er viðureign KA og ÍBV.
„Menn og konur forgangsraða því að mæta og styðja sitt lið en margir vilja einnig geta mætt á fleiri leiki sem hlutlausir áhorfendur. Höfundur skorar hér með á ÍTF og KSÍ að endurskoða þetta fyrirkomulag og dreifa leikjunum aftur á fleiri daga eins og áður var til hagsbóta fyrir aðdáendur Bestu deildarinnar,“ ritaði Kristján að lokum.
föstudagur 8. maí
Besta karla
17:30 Víkingur R.-Þór (Víkingsvöllur)
19:15 Fram-Valur (Lambhagavöllurinn)
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
19:15 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Lengjudeild karla
19:15 Njarðvík-Fylkir (JBÓ völlurinn)
19:15 Leiknir R.-Afturelding (Leiknisvöllur)
20:00 ÍR-Grindavík (Egilshöll)
Lengjudeild kvenna
18:00 Haukar-Keflavík (BIRTU völlurinn)



