Hrafn Tómasson hefur verið lykilmaður í liði KR í upphafi tímabils. Hrafn, eða Krummi eins og hann er oft kallaður, er 22 ára gamall miðjumaður.
Hann varð fyrir því óláni að slíta krossband árið 2024 en hann vakti athygli fyrir frammistöðu sína hjá Þrótti í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hann var á láni í fyrra.
Ragnar Bragi Sveinsson, leikmaður Fylkis, sagði Krumma hafa heillað sig með Þrótti í fyrra.
„Ég spilaði á móti honum í fyrra þegar hann kom á láni í Þrótt. Það var ekki hægt að ná boltanum af honum. Hann sveif um völlinn. Maður var mjög spenntur að fylgjast með honum í þessu KR-liði í upphafi tímabils.“

Alberts ára yfir Alexander
Þá var sömuleiðis rætt um framgöngu hins unga Alexander Rafns Pálmasonar með KR í sumar. Arnór Gauti Ragnarsson, fyrrum leikmaður Aftureldingar, sagði hann minna sig á Albert Guðmundsson.
„Það er svona Alberts fílingur af honum. Hann er svo ógeðslega góður. Deildarinnar vegna vonar maður að hann klári tímabilið með KR,“ sagði Arnór en Alexander hefur skrifað undir samning við Nordsjælland og heldur út til Danmerkur um mitt sumar.
Það hefur þó verið til umræðu að Alexander myndi fara aftur í KR á láni og klári tímabilið í Vesturbænum. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi við Fótbolta.net í vikunni og útilokaði ekki þann möguleika.