Hakan Calhanoglu er ekki að æfa með Inter um þessar mundir vegna meiðsla og er ólíklegt að hann verði með í bikarúrslitaleiknum, Coppa Italia, næsta miðvikudag.
Inter tryggði sér Ítalíumeistatatitilinn á dögunum og vonast til að leggja Lazio í úrslitaleiknum og vinna tvöfalt.
Inter tryggði sér Ítalíumeistatatitilinn á dögunum og vonast til að leggja Lazio í úrslitaleiknum og vinna tvöfalt.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Calhanoglu er lykilmaður hjá Inter og skoraði tvö mörk þegar liðið vann Como í undanúrslitum.
Inter mætir Lazio í deildinni á laugardaginn áður en liðin leika til úrslita í bikarnum.




