Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 12:33
Kári Snorrason
Sárabótamark Kane gæti tryggt Þjóðverjum auka Meistaradeildarsæti
Súrir Bæjarar eftir leikinn í gærkvöldi.
Súrir Bæjarar eftir leikinn í gærkvöldi.
Mynd: EPA
Mark Harry Kane í uppbótartíma gegn PSG gæti tryggt Þjóðverjum fimmta Meistaradeildarsætið, þó svo að Bayern hafi fallið úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Kane jafnaði metin í 1:1 á 94. mínútu, mörkin urðu þó ekki fleiri og fóru þeir frönsku áfram eftir að hafa unnið fyrri leikinn 5-4.

Spánn er nokkrum stigum á undan Þýskalandi í baráttunni um auka sæti í Meistaradeildinni. Mark Kane tryggði þó Þýskalandi nokkur stig á lista UEFA og eiga Þjóðverjar enn möguleika á að ná Spáni.

Eini hestur Þýskalands sem er eftir í Evrópukeppni er Freiburg en eina spænska liðið er Rayo Vallecano.

Ef Freiburg vinnur Braga og kemst í úrslit Evrópudeildarinnar og Rayo tapar gegn Strasbourg í Sambandsdeildinni, fer Þýskaland farið upp fyrir Spán á lista UEFA.

fimmtudagur 7. maí
Evrópudeildin
19:00 Freiburg - Braga
19:00 Aston Villa - Nott. Forest

Sambandsdeildin
19:00 Crystal Palace - Shakhtar D
19:00 Strasbourg - Vallecano
Slapp
banner
banner
banner