Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 22:07
Ívan Guðjón Baldursson
Óttar Magnús með tvennu í umspilinu
Mynd: SPAL
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Óttar Magnús Karlsson skoraði bæði mörkin í sigri Renate á útivelli gegn Casarano í umspili ítölsku C-deildarinnar.

Liðin mættust í fyrri leiknum í kvöld og fer seinni leikurinn fram á miðvikudagskvöldið. Sigurvegarinn heldur áfram í næstu umferð umspilsins í tilraun til að vinna sér inn sæti í Serie B fyrir næsta haust.

Óttar hefur verið funheitur undanfarna mánuði og er búinn að skora 7 mörk í síðustu 10 leikjum.

Í danska boltanum tryggði Århus sér deildarmeistaratitilinn með sigri á útivelli gegn Bröndby en Tómas Óli Kristjánsson var ekki í hóp.

Sverrir Ingi var ekki með er Panathinaikos tapaði fyrir AEK Aþenu og varði Lúkas Jóhannes Blöndal Petersson mark varaliðs Hoffenheim í 3-2 sigri gegn Saarbrücken í þriðju deild þýska boltans.

Í efstu deild í Noregi lék Júlíus Mar Júlíusson allan leikinn í tapi Kristiansund gegn Sandefjord og fékk Hrannar Snær Magnússon að spreyta sig síðustu mínúturnar. Kristiansund er með 8 stig eftir 7 umferðir.

Hilmir Rafn Mikaelsson var þá ónotaður varamaður í sigri meistaraliðs Viking sem er með 21 stig eftir 8 umferðir.

Jason Daði Svanþórsson var enn fjarri góðu gamni í tapi Grimsby á heimavelli. Grimsby tapaði 1-2 gegn Salford í fyrri undanúrslitaleiknum um sæti í League One og er því í erfiðri stöðu fyrir seinni leikinn á útivelli.

Oliver Stefansson var að lokum ónotaður varamaður í stóru tapi Tychy, sem er fallið niður um deild og mun því leika í þriðju efstu deild pólska boltans næsta haust.

Casarano 0 - 2 Renate
0-1 Óttar Magnús Karlsson ('3)
0-2 Óttar Magnús Karlsson ('24)
Rautt spjald: J. Spedalieri ('73), Renate

Bröndby 0 - 2 Arhus

AEK 2 - 1 Panathinaikos

Hoffenheim II 3 - 2 Saarbrucken

Sandefjord 2 - 0 Kristiansund

KFUM Oslo 0 - 2 Viking

Grimsby 1 - 2 Salford

Tychy 0 - 4 Ruch Chorzow

Slapp
banner
banner
banner