Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 14:35
Brynjar Ingi Erluson
Alonso færist nær Chelsea
Mynd: EPA
Xabi Alonso er skrefi nær því að taka við enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Times greinir frá.

Alonso er einn af fyrstu kostum Chelsea í stöðuna, en félagið hefur rætt við hann og umboðsmann hans síðustu daga varðandi að taka við liðinu í sumar.

Times segir viðræðum miða vel áfram, en að Spánverjinn vilji þó fá tryggingu.

Hann er brenndur eftir tíma sinn hjá Real Madrid og þá hefur Chelsea kastað löngum samningum á borðið fyrir fyrrum stjóra félagsins án þess að gefa þeim tíma til að rétta úr kútnum.

Chelsea mun ekki spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en það truflar Alonso ekki sem er meira en klár í verkefnið.

Alonso hefur einnig verið orðaður við stjórastöðuna hjá Liverpool, en samkvæmt heimildum helstu miðla á Englandi kemur ekki til greina að reka Arne Slot í sumar og er því Alonso ekki í myndinni eins og staðan er núna.
Slapp
banner
banner
banner