Ítalska félagið Roma mun kaupa hollenska framherjann Donyell Malen frá Aston Villa í sumar.
Malen, sem er 27 ára gamall, kom til Roma á láni frá Villa í janúarglugganum.
Sá hefur heillað með Rómverjum en hann hefur gert þrettán mörk og tvær stoðsendingar í aðeins sextán leikjum.
Í lánssamningnum var ákvæði um kaupskyldu ef Roma kæmist í annað hvort Meistaradeild Evrópu eða Evrópudeildina. Nú hefur Evrópudeildarsætið verið tryggt og mun Malen því ganga í raðir Roma frá Villa fyrir 25 milljónir evra og er samningsbundinn til 2030.
Roma er í 5. sæti ítölsku deildarinnar með 67 stig og í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið er með jafnmörg stig og Milan sem er í 4. sætinu á markatölu og aðeins einu stigi frá Juventus sem er í 3. sæti.

