Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
banner
   fim 14. maí 2026 11:13
Brynjar Ingi Erluson
Arteta fer yfir meiðslastöðuna - „Erfitt að segja“
Mikel Arteta
Mikel Arteta
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, fór aðeins yfir meiðslastöðuna á hópnum fyrir leik liðsins gegn Burnley á mánudag.

Ben White meiddist í leik með liðinu á dögunum og mun missa af síðustu leikjum tímabilsins og þá meiddist einnig ítalski varnarmaðurinn Riccardo Calafiori í lok fyrri hálfleiks gegn West Ham.

Arteta segist engu að síður mjög bjartsýnn á að endurheimta nokkra leikmenn fyrir síðustu leikina.

„Við misstum Ben um daginn, en það eru aðrir að koma til baka. Ég er fullur eldmóðs og jákvæður yfir stöðunni,“ sagði Arteta.

Hollenski bakvörðurinn Jurrien Timber er að koma til baka eftir að hafa verið frá í rúman mánuð. Hann segir möguleika á því að endurheimta hann fyrir lok tímabilsins.

„Við munum reyna allt til að fá hann aftur. Hann er ótrúlega mikilvægur leikmaður fyrir okkur og er að gera allt sem hann getur til þess að hjálpa hópnum á allan mögulegan hátt.“

„Það er möguleiki, en erfitt að segja nákvæmlega hversu mikill sá möguleiki er. Ég get ekki sagt þér það, en hann mun reyna allt sem hann getur til þess að ná því og það er áskorunin sem fram undan er,“ sagði Arteta.

Arsenal getur komið sér í þægilega stöðu á mánudag er liðið fær Burnley í heimsókn. Sigur myndi koma liðinu aftur í fimm stiga forystu og væru þá ágætis líkur á sófameistaratitli þar sem Man City heimsækir Bournemouth á þriðjudag.

Þá er Arsenal einnig komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn en liðið mætir ríkjandi Evrópumeisturum Paris Saint-Germain á Puskas-leikvanginum í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.
Slapp
banner