Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. mars 2019 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Stuðningsmenn Real Betis klöppuðu fyrir þrennu Messi
Mynd: Getty Images
Lionel Messi átti stórkostlegan leik og skoraði glæsilega þrennu er Barcelona lagði Real Betis að velli um helgina.

Fyrsta markið skoraði Messi beint úr aukaspyrnu og annað markið gerði hann eftir góðan undirbúning frá Luis Suarez.

Þriðja markið var mögulega það fallegasta þar sem hann fékk lága sendingu frá Ivan Rakitic og vippaði knettinum í slána og inn frá vítateigslínunni þrátt fyrir að Pau Lopez stæði nánast á marklínunni.

Stuðningsmenn Real Betis stóðu upp og klöppuðu fyrir Messi eftir þriðja markið, sem er sjaldgæft í knattspyrnuheiminum.









Athugasemdir
banner
banner
banner
banner