Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. febrúar 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Áfall fyrir Bayern - Kimmich í leikbann
Joshua Kimmich.
Joshua Kimmich.
Mynd: Getty Images
Bayern varð fyrir áfalli í gær er liðið mætti Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Leikurinn endaði með markalausu jafntefli og er einvígið galopið fyrir seinni leikinn í Þýskalandi. En Bayern verður án Joshua Kimmich í seinni leiknum.

Kimmich fékk að líta gula spjaldið í leiknum í gær og hann verður í banni í seinni leiknum sem fer fram 13. mars.

Kimmich er hægri bakvörður en hann hefur verið lykilmaður í liði Bayern á þessu tímabili.

Á meðan Kimmich fer í bann þá fær Liverpool Virgil van Dijk aftur, en hann var í leikbanni í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner