Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2019 13:18
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Íslendingavaktin 
Rússland: Ragnar valinn í lið umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson er í úrvalsliði 20. umferðar rússnesku deildarinnar hjá WhoScored sem gefur leikmönnum einkunnir miðað við tölfræði þeirra í hverjum leik.

Ragnar fékk 8.1 í einkunn fyrir sinn þátt og eru aðeins tveir leikmenn í liði vikunnar með hærri einkunn.

Ragnar er fastamaður í liði Rostov og vann liðið góðan 0-2 sigur á Rubin Kazan um helgina. Björn Bergmann Sigurðarson var einnig í byrjunarliði Rostov í leiknum.

Viðar Örn Kjartansson er einnig á mála hjá Rostov en hann var lánaður til Hammarby á dögunum. Þá var Sverrir Ingi Ingason seldur frá félaginu í janúar.

Sigurinn kom Rostov upp í sjötta sæti deildarinnar þar sem liðið situr með 29 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner