fös 13. september 2019 14:03
Elvar Geir Magnússon
Lampard fær Rudiger af meiðslalistanum: Í mikilvægt hlutverk
Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger hjá Chelsea er klár í slaginn á ný eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum í 1-1 jafntefli gegn Manchester United á síðasta tímabili.

Hann hefur spilað einhverjar mínútur með varaliði Chelsea síðustu vikur og er nú farinn að æfa að fullum krafti með aðalliðinu.

„Hann er klár í slaginn. Það er í mínum höndum að velja hann en hann mun fá mikilvægt hlutverk," segir Lampard.

„Hans hefur verið saknað. Hann er mikilvægur fyrir hópinn og getur haft jákvæð áhrif á yngri leikmenn."

Callum Hudson-Odoi og Reece James eru á leið til baka eftir meiðsli en þeir munu spila varaliðsleik í kvöld.

Chelsea er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stig eftir fjórar umferðir en liðið mætir Úlfunum á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 7 7 0 0 19 7 +12 21
2 Arsenal 7 6 0 1 11 5 +6 18
3 Brighton 7 5 1 1 23 5 +18 16
4 Chelsea 7 4 1 2 17 13 +4 13
5 Liverpool 7 3 3 1 9 8 +1 12
6 Brentford 7 2 4 1 13 8 +5 10
7 Leeds 7 2 4 1 9 6 +3 10
8 Everton 7 2 4 1 8 7 +1 10
9 Hull City 7 2 3 2 8 7 +1 9
10 Ipswich Town 7 3 0 4 11 15 -4 9
11 Newcastle 7 2 2 3 10 14 -4 8
12 Aston Villa 7 2 2 3 7 11 -4 8
13 Man Utd 7 1 4 2 10 10 0 7
14 Crystal Palace 7 2 1 4 9 17 -8 7
15 Bournemouth 7 1 3 3 9 13 -4 6
16 Tottenham 7 1 3 3 6 10 -4 6
17 Coventry 7 2 0 5 6 14 -8 6
18 Fulham 7 1 2 4 7 10 -3 5
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Nott. Forest 7 1 2 4 5 9 -4 5
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 7 1 1 5 6 14 -8 4
Slapp
banner
banner