Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. nóvember 2019 16:30
Fótbolti.net
Fótbolta.net mótið 2020 - Riðlaskipting og leikjaniðurröðun
Breiðablik vann Fótbolta.net mótið 2019.
Breiðablik vann Fótbolta.net mótið 2019.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Stjarnan mætast í fyrstu umferð.
ÍA og Stjarnan mætast í fyrstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Breiðablik og HK mætast í nágrannaslag í janúar.
Breiðablik og HK mætast í nágrannaslag í janúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net mun tíunda árið í röð standa fyrir æfingamóti í janúar og febrúar þar sem sterkustu lið landsins taka þátt. Sex félög úr Pepsi Max-deildinni eru í A-deildinni að þessu sinni sem og Grindavík og ÍBV sem féllu úr deildinni í haust.

Líkt og vanalega er liðunum skipt niður í tvo riðla og í kjölfarið er leikið um sæti þar sem efstu liðin í hvorum riðli mætast í úrslitum og svo framvegis. Félag deildardómara mun síðan sjá um dómgæslu á mótinu líkt og áður.

Breiðablik vann Fótbolta.net mótið árið 2019 en liðið lagði Stjörnuna 2-0 í úrslitaleik. Breiðablik er sigursælasta liðið í sögu mótsins en Blikar hafa fjórum sinnum orðið meistarar.

Hér að neðan má sjá riðlaskiptingu í A-deild Fótbolta.net mótsins 2020 sem og leikjaniðurröðun. Mótið hefst með krafti laugardaginn 11. janúar en þá fara fjórir leikir fram.

Riðlaskipting í neðri deildum Fótbolta.net mótsins mun síðan birtast á næstu vikum.

Riðill 1
Breiðablik
FH
HK
ÍBV

Laugardagur 11. janúar
11:15 HK - Breiðablik (Kórinn)
11:45 FH - ÍBV (Skessan)

Föstudagur 17. janúar
19:00 HK - FH (Kórinn)

Laugardagur 18. janúar
12:00 Breiðablik - ÍBV (Kópavogsvöllur)

Laugardagur 25. janúar
10:45 FH - Breiðablik (Skessan)
11:15 HK - ÍBV (Kórinn)

Riðill 2
Stjarnan
ÍA
Grótta
Grindavík

Laugardagur 11. janúar
11:30 ÍA - Stjarnan (Akraneshöllin)
15:00 Grótta - Grindavík (Vivaldi-völlurinn)

Fimmtudagur 16. janúar
20:10 Stjarnan - Grótta (Kórinn)

Laugardagur 18. janúar
11:15 ÍA - Grindavík (Akraneshöllin)

Þriðjudagur 21. janúar
20:10 Stjarnan - Grindavík (Kórinn)

Laugardagur 25. janúar
11:30 ÍA - Grótta (Akraneshöllin)

Leikið um sæti 1-4. febrúar.

Sigurvegarar Fótbolta.net mótsins frá upphafi:
2011: Keflavík
2012: Breiðablik
2013: Breiðablik
2014: Stjarnan
2015: Breiðablik
2016: ÍBV
2017: FH
2018: Stjarnan
2019: Breiðablik
Athugasemdir
banner
banner