Marco Silva er kominn langt í viðræðum við Benfica um að taka við sem nýr stjóri liðsins.
Samningur Silva við Fulham rennur út í lok mánaðarins en félagið hefur boðið þeim portúgalska nýjan samning sem hann hefur ekki samþykkt.
Jose Mourinho er á förum frá Benfica og er að taka við Real Madrid.

Samkvæmt heimildum BBC hafa viðræður Silva við Benfica gengið vel síðustu daga og samkomulag er nú sagt í sjónmáli.
Silva hefur stýrt Fulham í fimm tímabil við góðan árangur. Í heimalandinu hefur hann áður stýrt Estoril og Sporting.