Heimild: RÚV
RÚV setti saman álitgsgjafahóp sem valdi bestu erlendu leikmenn í sögu efstu deildar karla. Með því að smella hér má lesa þessa skemmtilegu úttekt.
Danski framherjinn Patrick Pedersen hjá Val er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar og fékk yfirburðakosningu.
Í deild hefur hann skorað 134 mörk í 207 leikjum og þar að auki lagt upp önnur 37.
„Tölurnar tala sínu máli. Óstöðvandi afl sem er búinn að skrá sig í sögubækurnar með stæl," segir Henry Birgir Gunnarsson, einn af álitsgjöfunum.
Steven Lennon, fyrrum leikmaður FH og Fram, er í öðru sæti í valinu.
„Galdrakarlinn frá Glasgow. Einstakur alhliða leikmaður sem ekki bara skoraði mörk í öllum regnbogans litum heldur spilaði líka upp á samherja sína. Einstök blanda," segir Hörður Magnússon.
Luka Kostic tók þriðja sætið.
„Það er erfitt að ganga fram hjá Luka Kostic á lista sem þessum. Hann var leiðtogi af guðs náð og á ótrúlega mikið í því hvernig hálfgert unglingalið Skagamanna fór frá því að vera versta lið deildarinnar í það að vinna tvær deildir í röð og eiga síðan að margra mati besta tímabil sögunnar hér á landi sumarið 1993. Hann hafði gæðin og sigurviljann en líka útgeislun sem fékk menn til fylgja honum í einu og öllu," segir Óskar Ófeigur Jónsson.

Topp tíu
1. Patrick Pedersen
2. Steven Lennon
3. Luka Kostic
4. Tommy Nielsen
5. Pablo Punyed
6. Zoran Miljkovic
7. Allan Borgvardt
8. Mihajlo Bibercic
9. Nikolaj Hansen
10. Gunnar Vatnhamar