Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   þri 07. apríl 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
'Ég er mjög þakklátur Gróttu fyrir hjálpina'
'Ég er mjög þakklátur Gróttu fyrir hjálpina'
Mynd: Grótta
Sleit fyrst krossband 2021 sneri til baka 2022 en sleit þá aftur. Hann átti eftir að slíta það í þriðja sinn áður en hann komst almennilega af stað aftur.
Sleit fyrst krossband 2021 sneri til baka 2022 en sleit þá aftur. Hann átti eftir að slíta það í þriðja sinn áður en hann komst almennilega af stað aftur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tók Cantona fagnið þegar hann skoraði með Stjörnunni 2021.
Tók Cantona fagnið þegar hann skoraði með Stjörnunni 2021.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þetta voru einhverjar lendingar og svakaleg óheppni'
'Þetta voru einhverjar lendingar og svakaleg óheppni'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég var helsti stuðningsmaður og sá pakki, en það er bara glatað fyrir alla að vera meiddir, ekkert öðruvísi hjá mér en öðrum'
'Ég var helsti stuðningsmaður og sá pakki, en það er bara glatað fyrir alla að vera meiddir, ekkert öðruvísi hjá mér en öðrum'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tristan Freyr Ingólfsson skoraði sigurmark Gróttu í 1-0 sigri á Álftanesi í gær en liðin mættust í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Tristan skoraði með góðu skoti fyrir utan teig með sínum öfluga vinstri fæti. Hann skoraði líka í sigrinum gegn Þrótti Vogum í 2. umferð bikarsins.

Hann er aftur kominn á völlinn eftir að hafa verið meira og minna fjarri góðu gamni vegna meiðsla í fimm ár. Hann spilaði síðast reglulega tímabilið 2021 með Stjörnunni. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

Lestu um leikinn: Grótta 1 -  0 Álftanes

„Það var geggjað að spila þennan leik, hrikalega sterkur sigur og mjög sterkt að vera kominn í 16-liða úrslit. Ég er mjög ánægður með þetta. Mér leið mjög vel, það var kraftur í þeim og þeir komu á okkur, en við bara sýndum ró og gott að ná marki fljótt í leiknum, það gaf okkur smá andrými," segir Tristan.

Hvernig lýsir hann markinu?

„Við fáum innkast hægra megin, náum nokkrum sendingum úti á kantinum og svo fæ ég hann, næ að „kötta" inn á vinstri og þá bara læt ég vaða. Það heppnaðist svona helvíti vel. Ég er að spila úti hægra megin, er að fíla það mjög vel, finn fyrir miklu trausti í Gróttu, líður hrikalega vel þar og það er gaman að spila svona framarlega."
Tristan spilaði yfirleitt sem vinstri bakvörður hjá Stjörnunni en í yngri flokkum var hann framherji. Hann er uppalinn hjá Álftanesi og var þar upp yngri flokkana áður en hann fór í Stjörnuna.

„Þetta var bara "win-win" staða (skipti ekki máli hvernig hefði farið), nei ég er að djóka. Þetta var bara mjög gaman, maður þekkir suma í liðinu og hrikalega gaman að mæta þeim."

Hann ræddi svo um endurkomuna á völlinn.

„Ég er fyrst og fremst ánægður með að vera byrjaður að spila aftur. Maður er svolítið eins og krakki aftur, geðveikt að mæta á æfingar og hafa gaman af þessu; númer eitt, tvö og þrjú að fá að njóta þess að spila fótbolta aftur."

„Nei, (það kom ekki sú hugsun að ég væri ekki að fara spila fótbolta aftur). Maður getur alveg farið djúpt niður í þessu, en aldrei af einhverju viti. Hausinn var bara innstilltur á það að halda áfram, kýla á þetta og reyna koma sér af stað aftur. Ég var ekki tilbúinn að gefast upp strax."

„Það var alveg erfitt (að fylgjast Stjörnunni spila í meiðslunum), bæði þegar það gekk vel og þegar það gekk illa. Maður var partur af þessu, en samt ekki alveg. Ég var helsti stuðningsmaður og sá pakki, en það er bara glatað fyrir alla að vera meiddir, ekkert öðruvísi hjá mér en öðrum."


Tristan sleit krossband í þrígang á vinstra hné og fór í alls fimm aðgerðir vegna meiðslanna. Hvað sögðu læknarnir?

„Ég var alveg spurður hvort ég vildi virkilega halda áfram með þetta. Þetta hefur verið bras, en maður hefur sinnt endurhæfingunni mjög vel, hlustað á lækna og sjúkraþjálfara."

„Í byrjun er svolítið „scary" að fara aftur út á völl og á æfingu. Fyrst þegar þú lendir í snertingu við annan leikmann ertu alveg var um þig. Um leið og maður tekur fyrsta kontaktinn, fyrstu tæklinguna, þá er maður svolítið búinn að brjóta ísinn; þá fer hræðslan að mestu leyti."

„Ég pæli í hvernig skóm ég er, ég er í þessum gervigrastökkum og passa allt; hugsa út í öll þessi 1% (sem geta skipt máli). Ég var alltaf rétt skóaður í öllum slitunum, það fyrsta var á grasi og svo tvö á gervigrasi. Þetta var aldrei þannig að maður festist í grasinu, þetta voru einhverjar lendingar og svakaleg óheppni."

„Ég kom ekki heill í Gróttu, var ekki byrjaður að æfa á fullu. Ég er mjög þakklátur fyrir hjálpina, tóku við mér og hjálpuðu mér að byggja mig upp og koma mér á þennan stað sem ég er á núna. Eftir að ég fékk fyrstu mínúturnar hefur gengið framar vonum að byggja þær upp milli leikja,
segir Tristan.

Í lok viðtals, sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst, ræðir Tristan um Gróttu og hvernig kom til að hann skrifaði undir á Seltjarnarnesi.

Dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á fimmtudag og gæti Tristan mætt hinu uppeldisfélaginu, Stjörnunni, í þeirri umferð.
Slapp
banner