Federico Gatti, leikmaður Juventus, hafnaði tilboði frá Galatasaray en hann bíður eftir tilboði úr úrvalsdeildinni.
Ítalski miðillinn Tuttosport greinir frá þessu en þar kemur fram að Everton hafi lengi haft augastað á honum. Þá hafa Aston Villa og Crystal Palace blandað sér í baráttuna.
Gatti 28 ára gamall varnarmaður en hann hefur ekki verið inn í myndinni hjá Juventus og vill ólmur fara frá félaginu.
Samningur hans gildir til ársins 2030 og talið er að Juventus vilji fá 20-25 milljónir evra fyrir hann.


