Á hverjum degi skoðum við allt helsta slúðrið úr boltaheiminum í boði Powerade. BBC tók saman.
Manchester United hefur engar áætlanir um að taka Marcus Rashford (28) aftur inn í aðallið sitt á næsta tímabili ef hann snýr aftur úr láni hjá Barcelona. (Sun)
Rashford er ákveðinn í að halda áfram hjá Barcelona en óvissa er um framtíð hans hjá United. (Teamtalk)
Real Madrid íhugar að fá Jose Mourinho til að taka aftur við félaginu en Benfica vill halda honum í að minnsta kosti eitt tímabil í viðbót. (AS)
Arsenal og Barcelona hafa áhuga á Enzo Fernandez (25) miðjumanni Chelsea en fá samkeppni frá Manchester City um argentínska landsliðsmanninn. (Teamtalk)
Það er eitt af forgangsatriðum Newcastle í sumar að fá inn nýjan markvörð. James Trafford (23) markvörður Manchester City og Bart Verbruggen (23) hjá Brighton eru meðal nafna á blaði. (Telegraph)
Arsenal hyggst selja leikmenn í sumarglugganum þrátt fyrir að hafa fengið yfir 120 milljónir punda frá UEFA fyrir árangurinn í Meistaradeildinni. (Sky Sports)
Brentford vill fá austurríska varnarmanninn Jannik Schuster (19) frá Red Bull Salsburg fyrir um 17 milljónir punda. (Athletic)
Tottenham vill fá Jan Paul van Hecke (25) frá Brighton en Chelsea og Liverpool hafa einnig áhuga á hollenska miðverðinum. (Teamtalk)
Umboðsmenn Wesley Fofana (25) hjá Chelsea hafa boðið Barcelona að kaupa franska varnrarmanninn. (Sky Frakklandi)


